|
|
01.08.2006 19:51:15 / Þórhildur
Jæja nú er ég loksins búin að gera það sem ég ætlaði að vera búin
að gera fyrir löngu..... búa til nýja bloggsíðu... orðin þreytt á
þessu blogcentral dóti!! Núna get ég farið að setja inn myndir á
síðuna við bloggfærslurnar og fleira skemmtilegt  er að vinna í
því að bæta við tenglum, uppfæra útlitið og þessháttar en i
framtíðinni verða færslur skrifaðar þar..... og slóðin er
www.togth.blogspot.com og
já þar sem ég get ekki gert tengil á þessu drasli þá verðið þið
bara að koppí-peista ---sorrý stína
sjáumst á nýju síðunni
Þórhildur
»
10.07.2006 13:50:50 / Þórhildur
Vá hvað það er búið að vera mikið að gera undanfarið!! Ekki verið
neinn tími til að skrifa blogg.
Núna erum við í fríi á Íslandi komum aðfararnótt seinasta
þriðjudags og förum aftur heim til DK næsta sunnudag. Þreyta var
allsráðandi þegar við komum til landsins enda búin að sofa litið
eftir 5 daga Roskilde festival með frábæru veðri, góðum tónleikum
og skemmtilegu fólki. Ég er ennþá í skýjunum eftir þessa hátíð, ég
skemmti mér vel þegar ég fór 2003 en núna skemmti ég mér miklu
betur, hvað það var sem hafði þau áhrif veit eg ekki en þetta var
bara megastuð.
Það var ýmislegt í gangi i DK fyrir Roskilde, helgina áður héldum
við fámennt en góðmennt partý í tilefni af 25 ára afmæli mínu og
útskrift Tryggva sem endaði með brennu í garðinum í morgunsólinni
 Svo var maður auðvitað að vinna, það gengur mjög vel í vinnunni
hjá mér, þetta er bara mjög gaman og maður fær að vera úti að njóta
góða veðursins inn á milli sem er auðvitað snilld og gamla fólkið
er yfirleitt mjög yndælt sumir auðvitað pínu kalkaðir en það er
bara fyndið.
Síðan við komum til íslands er búin að vera frekar pökkuð dagskrá
að heimsækja vini og vandamenn. Við skruppum til akureyrar á
fimmtudag og föstudag til að skoða litlu rúsínu Begga og Herborgar.
Hún er sko algjör sætabolla og pínulítil. Það var mjög gaman að fá
að kíkja á þau þrjú og sjá nýju íbúðina.
Við vinkonurnar hittumst á föstudaginn og vorum með stelpudjamm.
Anna Begga skipulagði frábæran ratleik þar sem okkur var skipt í
tvö lið og við hlupum út um allan kópavogsdalí svörtum ruslapokum í
leit að vísbendingum og að leysa þrautir. Svo voru fleiri
skemmtileg atriði og við skemmtum okkur saman fram eftir nóttu og
mættum svo í þynnkuvöflur hjá jónu á laugardaginn. Mjög skemmtilegt
allt saman, þær eru svo frábærar vinkonur mínar 
Jæja ég held ég láti þetta nægja í bili. Hugsa að næsti póstur
verði skrifaður í nýju íbúðinn okkar á Sólbakken Kollegiet. Við
flytjum nefnilega daginn eftir að við komum aftur til DK svo það
verðu nóg að gera til að byrja með þegar við komum aftur heim.
Þórhildur
»
17.06.2006 10:03:32 / tryggvi
Jæja eftir viku þunglyndi yfir að
vera kominn aftur til DK frá USA er kanski við hæfi að reyna að
setja eitthvað hérna inn á síðuna. Ferðin var snildin ein og
gekk einhvern vegin svona fyrir sig:
L.A. : Bjór og viskí, B-Real á
Rainbow Club, Viper Room og djamm
Las Vegas: Bjór í amerískum fótbolta
og Vodka-RedBull, Rugl spilavíti, Helgi “Fear and lothing” á
nærbuxunum
Hawaii: Bjór, Strönd, Hundamaðurinn,
Bjór, Ananas overdoze, Bjór, Big Kahuna burger( “this is a tasty
burger”), djamm, Svalirnar góðu, Heimsmet í vindsængursiglingu,
Tilraun til surfs, næstum því Fez, Skipalúður inn á herbergi, bjór
og meira djamm.
Sérstakt hrós fá svo Sella fyrir góða
og jafna dagdrykkju, og Macy´s fyrir að sjá fyrir nærbuxum
o.fl.
Er svo búinn að sitja með tárin í
augunum yfir því að vera kominn heim í viku og langar enn að drífa
mig aftur og helst ekki koma aftur.
Ferill minn sem tölvunörd fer rólega
af stað og hefur það sem næst hefur komist því að vinna þarna verið
að drekka fredagsøl með hinum gaurunum.
Annars er lítið að gera þessa daganna
nema láta sjá sig í vinnunni, horfa á HM og láta sig hlakka til
Roskilde festival ´06. Jónas Þór Jónasson lét í sér heyra í vikunni
til að tilkynna komu sína á festivalið og ber að hrópa ferfalt
húrra fyrir því. Þar með er ljóst að frænda-dúóið verður sameinað
aftur á Hróa, sem er vel. Reiknað er með að dúóið
o.fl. verði vel
marinerað við komuna til Íslands þann 3.júlí nk. En allavega
sjáumst þá.
Baráttukveðjur,
Tryggvi
»
11.06.2006 20:13:47 / Þórhildur
Þá er vikudvölinni í Barcelona lokið  Þetta var alveg frábær
ferð, Jóhanna, Arnar og Bergdís góðir ferðafélagar. Gaman að
heimsækja Möggu og sjá hvernig hún býr.
Hvað gerðum við? Við nutum lífsins fyrst og fremst, veðrið var mjög
gott alla dagana sól og mjög passlega heitt, maður var ekkert að
deyja úr hita og heldur aldrei kalt, semsagt allveg ideal veður.
Við byrjuðum ferðina á því að skella okkur á ströndina og að brenna
smá, þá var því lokið og við þurftum ekki að standa í því meira
(notuðum meiri sólarvörn eftir það). Svo var gengið fram og til
baka og út og suður um borgina til að skoða þessa og hina
ferðamannastaði og verslanir og auðvitað kom hluti af því sem var
til sölu með okkur heim. Við Bergdís fórum svo líka í svona
túrsitastrætó sem keyrði milli allra helstu túrista staðanna og svo
var hægt að fara inn og út úr strætónum þegar maður hafði áhuga á
að skoða. Þann dag löbbuðum við upp mjög margar tröppur og var ekki
laust við að harðsperrur gerðu vart við sig daginn eftir. Við fórum
líka í sund í ólympíu sundlauginni og nutum útsýnisins yfir borgina
af Tibitabo fjalli. Borðuðum góðan mat og drukkum gott vín og fórum
á nokkra klúbba.
Eins og ég sagði frábær ferð, við lærðum ýmislegt. Ég lærði t.d. að
það er erfitt að vekja Bergdísi á morgnanna og Jóhanna að maður
geymir ekki veskið sitt í framanáhólfinu á bakpokanum sínum, þá eru
nefnilega mun meiri líkur á því að veskinu verði rænt.
Á fimmtudagskvöldið hringdi síminn og ég fékk gleðifréttir, við
vorum komin með íbúð á kollegii sem heitir sólbakken og er nánast
niðri í miðbæ. Íbúðin er miklu stærri en sú sem við búum í núna,
eða 63 fermetrar með stóru svefnherbergi, góðri stofu, mörgum
skápum, nýlegu eldhúsi og ágætu baðherbergi. Við fáum íbúðina 15
júlí og þurfum að losa íbúðina hér ca. 17-18 júlí svo það verður
nóg að gera þegar við komum aftur heim frá íslandi 16 júlí. Við
þurfum líklega að mála nýju íbúðina svo við búum líklega í kössum
fyrstu vikurnar en það er allt saman ekkert mál því það er svo
gaman að flytja í svona stóra (allavega miðað við þá sem við erum
í) íbúð.
Núna er fríið mitt búið í bili og ég byrja að vinna í fyrramálið
klukkan 7:45 ég verð að vinna við heimahjálp, ég fer semsagt
heim til fólks sem þarf á hjálp að halda (yfirleitt gamals
fólks) og hjálpa því með ýmislegt t.d. að versla, þrífa, fara á
fætur o.s.frv. Ég held að þetta verði fínt, ég er allavega búin að
hitta yfirmanninn minn og við þetta lítur allt saman vel út. Ég
verð ýmist að vinna til 15 eða 15:45 þannig að það er nóg eftir af
deginum þegar vinnan er búin en ég verð svo að vinna nokkrar helgar
inn á milli en það er ekki strax. Skrifa fleiri fréttir af vinnunni
eftir nokkra vinnudaga.
jæja þetta er orðið nóg í bili
Þórhildur
»
31.05.2006 19:49:37 / Þórhildur
Jæja það er kannski kominn tími til að maður láti í sér
heyra!!
Það er búið að vera ansi mikiðað gera seinast einn og hálfa
mánuðinn en núna er ég komin í sumarfrí í nokkra daga 
Eins og Tryggvi talaði um hér í einhverri færslunni fyrir löngu
síðan þá fórum við til Noregs um páskana, Þórdís systir mín kom
líka með og við höfðum það bara mjög gott, heimsóttum
fjölskyldumeðlimi mína sem búa í Noregi, fórum á skíði, keyrðum um
firði og slöppuðum af. Pabbi var svo hér í köben þegar við komum
heim svo það tóku við nokkrir dagar af "fríi" hér með honum og við
fórum í tívolí og eyddum heilum degi i fields að versla föt á
Þórdísi og svona fleira skemmtilegt. En þegar þau voru farin tók
við vægast sagt strembinn tími, verkefnavinna á verkefnavinnu
ofan.
10 maí voru tvö verkefni búin og þriðja vel á veg komið svo þá tók
ég svona hálfsdags lærdóm á þetta því Lilja og Tóbías krúsidúlla
komu í heimsókn til okkar. Það var rosalega gaman að fá þau í
heimsókn og við Lilja og Tóbías brölluðum margt og mikið.
Löbbuðum um Kaupmannahöfn, versluðum, fórum út að borða og í
tívolí m.a. Lilja fór svo á árshátíð hjá Skjá Einum á
laugardagskvöldið og þá fengum við Tryggvi að passa Tóbías. Tóbías
var nú ekkert of sáttur við okkur til að byrja með, en eftir að
hafa lagt sig tvisvar vegna grenjuþreytu þá vaknaði hann bara hress
og glaður og var algjör rúsina og lék við okkur það sem eftir var
kvölds.
Þegar þau mæðgin snéru aftur til Íslands var lögð lokahönd á þriðja
verkefnið og próf og fyrirlestrar undirbúnir. Seinasta prófið var
svo á mánudagsmorgun, munnlegt próf á dönsku í gæðastjórnun
og gekk það bara vel. Svo núna er ég komin í sumarfrí í nokkra
daga.
Það var frekar skrýtið á mánudaginn að sitja heima og horfa út í
loftið og vera ekki með samviskubit yfir því að vera ekki að læra,
en samt sem áður mjög gott. Þar sem Tryggvi er ekki heima, en hann
er i útskriftarferð með bekknum sínum heima, er núna komin til
Hawai held ég og búin að vera í Las Vegas og Los Angeles, hef ég
reynt að nota tíman og hanga með vinkonum mínum hér í DK. Hitti á
mánudaginn Bergdísi og við ræddum um allt það sem við þyrftum
nauðsynlega að kaupa í Barcelona. Já við erum nefnilega að fara til
Barcelona núna á laugardaginn, í heimsókn til Möggu og Jóhanna og
Arnar koma frá Íslandi og hitta okkur líka svo það verður örugglega
mega stuð.
Ég ákvað það um daginn að þar sem ég gat ekki byrjað að vinna fyrr
en 12 júní þá nennti ég bara engan veginn að hanga hérna ein heima
í DK meðan Tryggvi sólaði sig í Hawai. Barceloan varð fyrir valin
og auðvitað þegar það fréttist að ég væri á leiðinni þangað þá létu
aðrir ekki á sér standa að koma með....hehe.
Í gærkvöldi fór ég til Gigju verkfræðigellu með Ástu Siggu
verkfræðigellu og Birnu (ekki verkfræði gella en hún fékk samt að
vera með ) við borðuðum stelpu mat, voða gott salat og drukkum
stelpu vín. Svo kíktum við aðeins út á kaffihús og svona á
Istedgade og þar sem klukkan var orðin - lest hætt að ganga - þegar
við fórum heim þá fékk ég bara að gista á sófanum hjá Gígju. Í dag
vöknuðum við svo og röltum í bæinn í sólinn og fórum á kaffihús og
svona. Þegar ég var að rölta um í bænum þá rann upp fyrir mér hvað
ég er glöð að hafa ákveðið að vera hérna í sumar. Sumarið er besti
tíminn hér og þá er svo asnalegt að fara heim til íslands á sumrin
og missa af því, en ég kem nú heim í tvær vikur í frí til að hitta
vini og vandamenn, svona svo maður gleymi ekki hvað það er gott að
vera heima á Íslandi líka.
Jæja ætli ég láti þetta ekki duga í bili, læt heyra í mér fljótlega
aftur!
Sumarkveðja til ykkar allra
Þórhildur
»
20.04.2006 14:20:45 / tryggvi
Þvílík heppni!! Vann 1.000.000
evra í internetlottói áðan. Já segja svo að peningar séu ekki
ókeypis, bara vera með e-mail og þetta kemur upp í hendurnar á
manni. Ótrúlega flókið lottó reyndar eins og sést á þessari
setningu úr bréfinu sem mér barst um vinninginn.
“Your E-mail address attached
to ticket number 653-908-321-675 with serial main number
345-790-241-671 drew lucky star numbers 34-32-90-43-32 which
consequently won in the 2nd category, you have therefore been
approved for a lump sum pay out of 1.000.000.00 uro. (OneMillion euro)
CONGRATULATIONS!!!”
Bréfið heldur svo áfram og biður mig
um að segja engum frá vinningnum en hafa samband sem fyrst til að
hægt sé að greiða út vinninginn, en þið, sem þetta lesið, segið bara engum
frá þessu og þá ætti þetta að vera í góðu. Þannig að þegar ég hef
talað við Comfort Jose, Lotto coordinator verð ég 98.000.000 ISK
ríkari og ætti því að geta boðið upp á drykki og með því þegar ég
kem heim næst sem verður mánudaginn 3.júlí.
Vildi bara dreifa þessum
gleðitíðindum
Kv.
Tryggvi Jónsson
Milljónamæringur
»
09.04.2006 20:22:50 / tryggvi
Jæja ætli það sé ekki kominn tími á að láta eitthvað í sér heyra
hérna á síðunni. Það hefur ansi margt gerst síðan ég bloggaði
síðast. Hæst ber kanski komu páskaeggjana okkar, en þau komu í hús
í gær og kunnum við móður minn bestu þakkir fyrir það. Næst ber
kanski að nefna að ég kom með kombakk í lagerbransan, fór að vinna
á lagernum hjá Peugout i Danmörku. Þar hitti ég fyrir öll mestu
fifl norðurlandana og þó víðar væri leitað. Svo heimsk voru þessi
ógeð að vinur okkar bananamanna hann Mummi er forsetaefni miðað við
þetta pakk. En allavega þá gerði ég það besta sem ég hef gert síðan
ég byrjaði þarna rétt áðan, þ.e. að hætta. Ástæðan fyrir þessu
kombakki var ekki brennandi áhugi á að týna skrúfur og rúðuþurkur í
kassa, heldur er ég að fara með krökkunum í verkfræðinni í
útskriftarferð í maí og er förinni heitið til Los Angeles, Las
Vegas og Hawaii. Sem sagt daginn eftir síðasta próf borða ég
kvöldmat í LA sem verður líklega ein af síðustu máltíðum sem ég á
eftir að hafa efni á þar sem ferðinni verður svo heitið til Las
Vegas tveim dögum seinna, og svo verður þetta endað með viku á
Hawaii. Ekki slæmt það. Fékk svo sumarvinnu fyrir viku síðan hjá
E.pihl og søn sem er verktakafyrirtæki hérna í DK og á m.a. Ístak.
Veit nú ekki alveg hvað ég er að fara að gera þarna en ég verð
allavega að vinna í IT-deildinni. Skál fyrir því. Enn úr einu í
annað, ég fór í bíó með Bippa í gærkvöldi að sjá Inside man sem ég
mæli eindregið með en alla vega þá eins og fólk kanski veit þá
halda íslendingar oft að þeir geti talað íslensku alls staðar án
þess að nokkur maður skilji það. Við Börkur vorum sem sagt rétt
sestir þegar inn í salinn labba tvær stelpur á aldri við okkur og
setjast fyrir aftan okkur. Þar sem við vorum of uppteknir að slafra
í okkur namminu og poppinu okkar áður en að myndin byrjaði til að
geta einbeitt okkur að henni, þá vorum við ekkert að tala saman. En
þessar stelpur sem sagt eru greinilega íslenskar og eru að tala
saman um einhvern strák. Eftir nokkrar umræðum um þenna ágæta mann
berst heyrist þetta: “ Hann er samt ótrúlega furðulega vaxinn
niður” og svo fylgdi svo nákvæm lýsing á millifótakonfektinu á
honum að ég myndi líklega þekkja hann ef ég rækist á hann í
sturtunni í sundi. Stúlkan bar gæjanum samt söguna vel svo að hann
hefur lítið til að skammast sín fyrir. Við Birkir gátum nú ekki
annað en brosað út í annað og sáum eiginlega helst eftir því að
hafa ekki vakið athygli á þjóðerni okkar. En allavega, góð mynd.
Erum svo á leið til Noregs á morgun að heimsækja frændfólk
Þórhildar og svo kíkjum við líka á Stjána hermann. Pís át Tryggvi
»
02.03.2006 19:34:30 / Þórhildur
Mér finnst að núna megi vorið fara að koma, það er kominn mars og
veðurfréttirnar spá bara frosti og snjó næstu vikuna, mér finnst
það ekkert sérlega spes. Það er meira að segja betra veður á
Íslandi en hér. Já ég veit það því við skruppum heim á frónið í
helgarferð. Það er skrýtið að hugsa til þess að maður skreppi til
Íslands í helgarferð en það var mjög gaman-allt að gerast heima-.
Aðalástæðan fyrir því að við litum við var afmælið hennar elsku
mömmu minnar. Hún var hvorki meira né minna en 50 ára, afmælið var
á laugardagskvöldið og það var mjög skemmtilegt. Í fyrsta skipti á
ævinni ákvað mamma að halda veislu þar sem hún þarf ekki að vera á
kafi allan tíman sjálf heldur fékk hún tengdapabba Halldórs bróður
til að sjá um veisluna. Hann er að fara af stað með það að sjá um
veislur í heimahúsum með kokki úr kokkalandsliðinu. Maturinn var
frábær en þetta var samt ekki of formlegt. Ef ykkur vanntar
einhvern til að sja um veislu þá mæli ég með honum, hafið bara
samband ef þið viljið nánari upplýsingar. Það voru auðvitað ræður
og annað skemmtilegt í veislunni, vinkonur mömmu voru búnar að
semja texta um hana við þekkt lag og allir sungu (það er ótrulega
danskt að gera svoleiðis og mjög skemmtilegt). Pabbi hélt ræðu,
eins og hann er nú góður í því, ræðan var svipuð þeirri sem hann
hélt í útskriftarveislunni minni (fyrir þá sem muna eftir því) bara
lengri og mér fannst hún ennþá vandræðanlegri. Klukkan eitt var
farið að rýma borðin af gólfinu svo hægt væri að fara að dansa og
þá gerðum við, Tryggvi og Halldór okkur ljóst að við þyrftum að
fara að hella í okkur ef við ætlum að halda í við restina af
afmælisgestunum. Við Tryggvi játuðum okkur bara sigruð og stungum
af niður í bæ þar sem ég fór aðeins heim til Jóhönnu þar sem hún
var með útskriftarveislu og svo löbbuðum við öll saman í bæinn og
drukkum hvítvín úr breezer flöskum á leiðinn. Það má segja að ég
hafi líka verið slök í þeirri drykkju því þegar ég var rétt komin
niður fyrir hálsinn á breezer flöskunni sinni þá var Jóhanna búin
með sína. En það var bara gaman og Jóhanna var hress, kannski pínu
völt á fótunum í fyrstu á hressó en eftir nokkra dansa var hún búin
að finna "vegg" til að styðja sig við  . Ég skemmti mér svaka vel,
fór svo og hitti Tryggva, Stefin og Gunna á pizza king síðar um
kvöldið. Strákarnir voru í banastuði og ég held að ég hafi aldrei
heyrt Tryggva hlæja jafn mikið, enda voru Stefnir og Gunni duglegir
við að skemmta okkur.
Fyrir utan þetta kvöld var helgin að öllu leyti mjög vel heppnuð, á
föstudaginn hittum við Tóbías sætakrútt og svo skipulagði Lilja
kaffihúsakvöld á nótæm og allt í einu var ég í góðravinkvenna hópi
á kaffihúsi niðri í bæ. Laugardagurinn fór að mestu í að undirbúa
veisluna fyrir utan að fara í sund með Hiddu, það var svo gott að
komast í heitapottin, vatnið hérna er nefnilega yfirleitt ekkert
sérlega heitt þannig að maður er alltaf í pissvolgri sturtu. Á
sunnudaginn fórum við í bollukaffi til tengdamömmu og þar var öll
fjölskylda Tryggva samankomin. Þar hittum við annan sætan gæja,
Tristan, hann fæddist sama dag og við fluttum til danmerkur og var
í Namibíu um jólin svo við vorum að sjá hann í fyrsta skipti sem
var mjög gaman.
Besti flugmanns vinur okkar flaug með okkur heim, það var fyndið
þegar heyrðist allt í einu þetta er Árni Már Sturluson flugmaður
sem talar. Mér finnst maður að verða svo fullorðin þegar
flugmaðurinn sem flýgur með mann er vinur manns. Já ætli maður sé
ekki að verða fullorðin bráðum.... Nei ekki strax....
Á mánudaginn eftir lendingu tók skólinn við, núna er öll hópavinnan
að byrja svo álagið fer að aukast en það er bara gaman, er það
ekki? Ég var að horfa á planið fyrir önnina og sá að það er
næstum helmingurinn búinn, þetta líður ótrúlega hratt!!
Við þurfum að fara að ákveða hvað við ætlum að gera um páskan
þeir nálgast óðfluga, á maður að fara í ferðalag eða bara
vera heima??
Helgin fer örugglega að mestu leiti í lærdóm en annaðkvöld er ég að
fara að hitta krakka úr rústúrnum, það verður örugglega stuð að
vanda.
Jæja þarf að kíkja á bækurnar fyrir svefninn
bið að heilsa í bili
Þórhildur
»
22.02.2006 20:56:48 / Þórhildur
Jæja ætli það sé ekki komin tími til að skrifa eitthvað hérna á
bloggið. Ég hef verið á leiðinni að búa til nýja bloggsíðu
undanfarið og hef alltaf frestað því að skrifa. Það er nefnilega
eitthvað að kommenta kerfinu hérna það fyllist allt af einhverjum
óskiljanlegum kommentum á gömlum færslum og það fer alveg
óstjórnlega í taugarnar á mér.
Það er annars nóg að gera hérna hjá okkur. Skóli, skóli og smá
vinna. Ég tók að mér eina vakt hjá póstinum úti á Amager seinasta
laugardag, það var mjög fínt ég fékk að hlaupa upp og niður tröppur
með póst í nokkra klukkutíma. Ég er afleysingarstarfsmaður svo það
er bara hringt í mig ef það vanntar einhvern i vinnu og ef ég kemst
ekki þá segi ég bara nei svo það er engin skuldbinding sem felst í
þessu svo þetta er mjög fínt.
Helgina fyrir rúmri vikur voru Stefnir og Gígja hjá okkur í
heimsókn og það var rosalega gaman, við fórum að djamma, borðuðum
Sushi, kíktum á þorrablót íslendinga í kaupmannahöfn, fórum að
verlsa (shopping maraþon, nema ég átti engan pening þannig að ég
varð bara að láta mér nægja að skoða) og gerðum margt fleira.
Hápunktur heimsóknarinnar var á mánudagskvöldið þegar Stella og
Valdi komu frá Lundi og fóru með okkur út að borða á Reef and Beef.
Þar fengu strákarnir sér allir Kílóa steik og kláruðu hana næstum
allir (allir nema einn) við stelpurnar vorum aðeins settlegri í
valinu og ég fékk kengúrukjöt sem var mjög gott og ég mæli hiklaust
með því. Það var ekki laust við að það væru frekar þungir menn sem
gengu út af Reef and Beef þetta kvöldið.
Í gær fórum við í klippingu hjá Söru svo núna erum við aftur komin
í hátískuhópinn, vorum orðin frekar lubbaleg. Tryggvi fór svo að
horfa á meistaradeildina í bænum og ég hitti Hörpu og við fórum á
kaffihús mjög notalegt kvöld.
Jæja ætli ég látið þetta ekki nægja af skrifum í bili og næst þegar
ég skrifa verð ég vonandi búin að gera aðra bloggsíðu.
Ætla að fara að ath hvort þeir séu ekki að sýna eitthvað
skemmtilegt frá ólympíu leikunum. Vonandi skautadans, mér finnst
það svo skemmtilegt.
bless í bili
Þórhildur
»
07.02.2006 17:47:35 / Þórhildur
Þá er vika búin af skólanum og mér líst bara vel á þetta allt
saman. Ég er að taka kúrsa i Motion Control (fyrir þá sem þekkja er
þetta svipað og sjálfvirk stýrikerfi, bara meira verið að nota
þekkinguna i verkefnum í raunveruleikanum), Gæðastjórnun,
Innovation in product development ( sem mér finnst mjög spennandi,
við eigum að finna nýja tækni sem hefur verið þróðu í DTU og finna
not fyrir hana og "búa til" nýja vöru þar sem hún nýtist) og
maschinedynamics ( sem byggist á sveiflufræði, ótrúlegt en satt þá
líst mér mjög vel á það þó Sveiflufræði hafi ekki verið besti vinur
minn).
Af öðru er svo sem ekki markt marktækt búið að gerast, við fórum í
afmæli til Kristians hennar Bergdísar á föstudaginn og það var mjög
skemmtilegt, reyndar ekki alveg eins auðvelt að vakna á
laugardaginn klukkan átta en þá fór ég á námskeið í Keramik
klúbbnum uppi í DTU við lærðum ótrúlega spennandi tækni með lituðum
leir.
Núna um helgina eru Stefnir og Gígja að koma í heimsókn og á
mánudaginn verða Valdi og Stella líka í kaupmannahöfn (eru að fara
í heimsókn til Lundar) svo við ætlum öll að fara saman út að borða
á Reef and Beef sem á víst að vera einhver rosa góður staður.
Hlakka til þess.
Í gær kom snjókomma og svo rigning hér í kaupmannahöfn og það er
ótrúlegt hvað svona snjór hefur áhrif á samfélagið hérna. Samgöngur
bara stöðvast eða ganga ótrúlega hægt og alls ekki á áætlun. Ég fór
í strætó heim úr skólanum og fyrsti strætó sem mætti á svæðið
keyrði fram hjá því hann var þegar fullur, ég komst sem betur fer
með í næsta vagni og ferðin gekk alveg ágætlega en það voru sumir
sem voru búnir að bíða mun lengur en ég.
En Tryggvi er tilbúinn með matinn svo ég segji bara bæ í bili.
»
01.02.2006 16:27:46 / tryggvi
Jæja þá er friðurinn úti,
eða allavega svona að mestu leiti. Byrjaði aftur í skólanum
eftir 10 daga hlé á mánudaginn. Önnin fór ótrúlega vel af stað
þegar ég mætti í Projectledelse eða verkefnastjórnun eins og það
myndi útleggjast í íslensku. Eftir u.þ.b. 30 mín af rausi um
hvað skyldi gera í vetur til að ná áfanganum bauð kennarinn
velkominn góðan gest af námsfyrirkomulags-sviði skólans, sem
ætlaði að segja okkur allt um hópavinnu, þ.e. hvernig slíkt skal
fara fram. Leikmaður heldur kanski að hópavinna gersit á þá vegu
að fólk hittist, geri það sem það á að gera, og fari svo til
síns heima aftur. En ekki aldelis. Hópavinnufræðingurinn þrumaði
yfir okkur í 2 tíma um alls kyns tegundir fólks í hópa vinnnu
o.s.frv. milli þess sem hún krafðist þess að við ræddum við
sessunauta okkar um okkar helstu styrkleika og veikleka. Við
þetta tækifæri kom í ljós að minn stærsti veikleiki er klárlega
að ræða um mína helsu styrkleika og veikleika á dönsku. Annars
vorum við frekar fyndið combo ég og sessunautar mínr, en með mér
í röð sátu eiturhress tyrkja-dani, sem talaði út í eitt og svo
feimnasti maður heims sem roðnaði við minnsta augngotur, en náði
þó að stama því upp að honum findist betra að vinna
einn.
Eftir þetta var ferðinni
heitið í “Programming in C++” og þar var nú öllu léttari stemming,
svona framan af allavega. Finnst samt mjög spaugilegt hvað
tölvunördar hópast alltaf í áfanga þar sem er kennt efni sem þeir
kunna undir því yfirskyni að vera að rifja upp, og með þeim
tilgangi að ausa úr viskubrunni sínum yfir samnemendur sína. Í
svoleiðis hóp getur minnsta innsláttarvilla skilað sér í
harðvítugum deilum um hverju óskilgreind breyta í forritunarkóða
skilar. Áhugavert ekki satt.
Að lokum vil ég segja ykkur
frá gaurnum sem kennir mér Operations research. Hann heitir Henrik
Juel(berist fram júl) sem kanski væri ekkert fyndið nema fyrir það
að hann er gjörsamlega hvíthærður og með alskegg, alls ekki
ósvipaður öðrum manni kendum við jólin. En allavega landsliðið er
að rokka á HM sem er vel og með því kveð ég
Megi krafurinn vera með
ykkur.
»
28.01.2006 17:44:18 / Þórhildur
Jæja þá er fríið að verða búið. Bara sunnudagurinn eftir svo tekur
við ný önn í skólanum, nýir kúrsar og ný verkefni. Það verður nóg
að gera hjá mér held ég, ég er skráð í 32.5 og hálfa einingu sem
eru 16 íslenskar einingar. Miðað við að fyrir jól var ég í 25
einingum.
Við erum nú aðallega búin að slappa af í fríinu, mamma kom á
laugardaginn einum degi á eftir áætlun vegna snjóstorms í danmörku
sem lokaði öllu. Við fórum í bæinn, í búðir, á safn, danish design
center, og út að borða saman. Það var mjög fínt. Mamma fór svo á
ráðstefnu í Helsingor á mánudaginn. Við fórum í smá bíltúr um
Norðursjáland á þriðjudaginn og enduðum í helsingor og tókum
mömmu með okkur heim.
Á miðvikudagsmorgun vaknaði ég og allt í einu fékk ég svakalegan
bakverk, ekkert sérlega skemmtilegt en það er nú bara svona
stundum. Ég fór til læknis og fékk verkjalyf og upplýsingar um
æfingar sem ég á að gera og ef ég er ekki búin að jafna mig eftir
14 daga á ég að fara aftur til læknis. Það var nú svo sem lán í
ólani að þetta gerðist í fríinu.
Í gærkvöldi fengum við nokkra gesti og horfðum á ísland-danmörk.
Það var nú frekar glatað að við náðum ekki að vinna en samt ágætt
fyrri partýið þar sem í því voru bæði danir og íslendingar. Allir
fóru í bæinn um tófl leitið en ég var nú bara heima til að reyna
ekki of mikið a bakið.
jæja kominn tími á bakæfingar
Kv Þórhildur
»
23.01.2006 19:03:19 / tryggvi
Jæja það hlaut að koma að
því að einhver skrifaði eitthvað hér inn. Ég vil byrja á því að
biðja hann Valdimar afsökunar á því að hann hafi lært eitthvað.
Annars er nú ekki mikið að frétta, Danmörk var lokuð á
föstudaginn vegna snjókomu, þá sannaðist hversu mikið
verkfræðilegt afrek stórabeltisbrúin er, en henni var lokað af
því að það var frost. Ég ætla nú ekki að fara að spila mig sem
einhvern vanann trukka-Jóa en það að fá móðursýkiskast og kalla
þetta snjóstorm yfir ökklaháum snjó er nú kanski full mikið af
því góða. Annars eru síðustu 3 vikur búnar að fara í setur yfir
verkefninu í janúarkúrsinum okkar sem var nú bara fínn, þrátt
fyrir að ég hafi nú ekki mikið vitað um hvað verkefnið mitt var.
Svo er núna bara 10 daga frí, og svo sem ekkert planað nema
kanski að leigja “ 5 favoriter” á Blockbuster. Læt þetta duga í
bili
Ta ta
»
21.12.2005 15:50:18 / Þórhildur
Jæja þá er prófið mitt og prófin hans Tryggva loksins búin. Okkur
gekk báðum vel í dag sem er auðvitað mjög gott. Nú er bara að ganga
frá smáatriðunum og koma heim á morgun.
Já í ár ákváðum við Tryggvi að senda engin jólakort. Í stað þeirra
sendum við ykkur bara jólakveðju hérna á blogginu okkar.
Gleðileg jól kæru vinir og farsælt komandi ár. Við vonum að þið
hafið það sem best yfir hátíðirnar og vonum að við sjáum ykkur sem
flest á meðan við erum heima.
Jólakveðja frá okkur.
»
18.12.2005 15:36:11 / Þórhildur
Eftir viku er komin jóladagur. Það finnst mér skrýtið það er svo
margt sem á eftir að gerast þangað til að mér finnst það bara ekki
geta passað.
Í gær tók ég mér frí frá lærdómi og gerði jólahreingernigu í litlu
íbúðinni okka, þvoði þvott og eldaði rifjasteik. Ég hef aldrei
eldað svona stórt kjötstykki áður eins og læri eða hrygg eða
svoleiðis en þetta heppnaðist bara svona líka vel enda var ég með
góða matreiðlsu bók. Meðlæti var kartöflur bakaðar í ofni, sósa úr
soðinu sem kom af kjötinu, salat og rauðkál. Í mat voru við Tryggv,
Harpa, Bergdís, Krisjan og Birkir. Það var mjög
jólalegt og skemmtilegt. Þau fóru nú frekar snemma heim eða fyrir
tólf sem var fínt því þá gátum við farið að sofa á skikkanlegum
tíma og byrjað að læra í morgun.
Á föstudagskvöldið fórum við loksins í jólatívolí, það var kósý,
fullt af ljósum og jólalegt en svolítð kalt.
Nú fer loksins að koma að þessu prófi sem ég er búin að vera að
bíða eftir, það er á miðvikudaginn og svo flugferð á frónið á
fimmtudaginn. Það verður gaman að koma heim og hitta fjölskyldu og
vini, borða góðan mat og slappa af.
Hlakka til að sjá ykkur sem eruð heima.
Þórhildur
»
Síður: 1 2 3
|
|